Þá er ég búin að henda nýju myndbandi inn. Þetta er svona frekar látlaus (samt pínu öðruvísi!) augnförðun og nude varir. Auðvitað er exótísk tónlist undir, en ég stefni á að semja eitthvað gott stef á kirkjuorgelið hér heima á næstunni. Ekki? Endilega skiljið eftir athugasemd á youtube! Ekki neitt dónalegt samt. Góða helgi! http://youtu.be/Cz0FQ9TJgRA
Augabrúnamas!
Þá er komið að þriðja meistaraverkinu! Það venst furðu hratt að tala við ekki neinn og ég er alveg að fara að hætta að vera með kjánahroll. Hér sýni ég ykkur hvernig ég móta augabrúnirnar mínar, laga og breyti þeim. Bæði þegar ég er á hraðferð og ekki. Þessi rútína breytist reglulega, svo þið gætuð átt... Continue Reading →
Vídjóredding
Jæja, þá er nýjasta meistaraverkið mætt á svæðið. Til hamingju þið ef thumbnailið er ennþá ég með rottusvip í miðri setningu! Endilega gefið þessu 'thumbs up' á youtube ef þið eruð til í fleiri vandræðalega slæm myndbönd. Ég breyti þessu kannski bara í raunveruleikasjónvarp ef áhugi er fyrir hendi. Ég ákvað að hafa svona exótíska... Continue Reading →
Bloggaratagg!
Af því að dagurinn í dag fór í (misheppnaðar) vídjótökur ætla ég að svara nokkrum laufléttum bjútíbloggaraspurningum. 1. Would you rather lose all of your mascaras, eyeliners, lipsticks, and lip glosses or lose all of your palettes and eye shadows? Úff. Sko maskararnir og blýantarnir eru alls ekki það mikilvægasta sem ég á. Varalitirnir mínir... Continue Reading →
Vídjó af mér að tala um að búa til vídjó.
Jæja, hér kemur smá inngangur að vídjóframleiðslunni minni. Þetta alveg 4 mínútum of mikið af mér í nærmynd að tala um ekki neitt, en ég setti þetta eiginlega hérna inn til að komast sjálf yfir kjánahrollinn. Ég stefni að því að vinna í fyrsta myndbandinu um helgina, en þetta er svolítið tímafrekt. Ég þurfti að taka... Continue Reading →
Smá grunge í tilefni dagsins!
Ég lofaði posta 'less wearable' lúkkunum mínum líka hér á nýja árinu, en hér kemur síðasta dúllerí. Mac cranberry augnskuggi yfir allt og mac hautecore á vörunum. ABH dipbrow í augabrúnir og freknur! Annars er ég skroppin til minnar elskulegu Reykjavíkur með fjöllunni og rita þetta á ferð í nánd við Hvolsvöll. Gervihnattaöldin krakkar mínir...... Continue Reading →
Telemeiköpp vol.2
Hér koma nokkrar últrafilteraðar instamyndir frá mér í tilefni dagsins. Það rata ekki öll lúkk inná bloggið, en sumt af þessu hefur þó komið hér. Flippuðustu lúkkunum held ég yfirleitt fyrir sjálfa mig, en ég ákvað að á nýju ári myndi ég hætta að gera það. Framvegis mun ég láta allt flakka hér inni! Búið... Continue Reading →
Nýir burstar á nýju ári
Ég efast ekki um að fleiri bíði spenntir eftir nýju Real Techniques burstunum, en 'Bold metals' koma út á nýju ári. Ég held reyndar að þeir séu komnir í sölu hjá Ulta, en við þurfum pottþétt að bíða aðeins lengur. Það eru miklar pælingar á bak við burstana og svo eru þeir líka svo mikið augnagotterí!... Continue Reading →
Kat Von D lock it foundation!
Jæja. Ég var víst fyrir löngu síðan búin að lofa því að segja frá þessum farða. Ég ætla að byrja á því að taka það fram að hann fæst ekki hér á landi, en hann er fáanlegur á Amazon og í Sephora. Ég er lengi búin að hafa augastað á Kat Von D lock it farðanum,... Continue Reading →
Too faced everything nice set!
Jæja, þá er ég komin heim úr smá fríi og tilbúin í slaginn aftur. Ég sagði ykkur um daginn frá nokkrum jólasettum sem ég hafði augastað á, en ég fékk einmitt eitt af þeim í hendurnar um síðustu helgi, eða Too faced - everything nice settið. Ég var svo heppin að vinkona mín var úti... Continue Reading →