Ég hef ekkert gáfulegt að segja í dag (allavega ekki svona fyrir hádegi á meðan ég er með ælupest), en hér eru nokkrar símamyndir frá síðustu vikum. Það er ágætt að hafa í huga að ég er með svokallað krónískt bitchfés og pósurnar mínar geta verið smá hallærislegar þegar ég er að taka meiköppmyndir. Þið verðið bara að leiða það hjá ykkur eða njóta þess að hneykslast.
Hér erum við Katla úti að veiða fisk og ég með gotharasmokey í gúmmítúttum. Casual day.
Meiköpplaus geimvera.
Hér er ég að búa til varaliti, lúkkar pínu shady andrúmsloft. Útkoma á næstu 2 myndum.
…úr varð dökkgrænn litur með túrkislituðu shimmeri í þetta skiptið. Þessi fer í jólapakkann hennar mömmu í ár. Djók.
Eigið góðan og ælulausan dag!
xx
Leave a Reply