Í haust bættist nýr maskari við í Colossal Go Extreme línuna hjá Maybelline, -leather black.
Ég fékk þennan maskara sendan til að prófa, en ég hafði prófað þennan upprunalega (gula) áður og líkaði hann ágætlega.
Þessi er frábrugðin gula af því leytinu til að hann á að þykkja meira og formúlan er extra svört. Burstinn er aðeins stærri og öðruvísi í laginu. Hárin í honum eru frekar fíngerð og passlega langt á milli þeirra til að augnhárin klessist ekki of mikið saman.
Hér sjáið þið fyrir, eftir eina umferð og eftir tvær.
Að mínu mati er þetta svona fullkominn maskari til að vera með dagsdaglega. Hann þykir vel, lengir líka aðeins, en án þess þó að vera of dramatískur. Hann er virkilega léttur á augnhárunum, stífnar ekki mikið og hrynur þar af leiðandi ekki. Í fyrsta skiptið sem ég setti hann á mig gleymdi ég því að ég væri með maskara og nuddaði augun hressilega. Formúlan er eins og segir, extra svört, sem gefur fallega skerpu.
Á vörunum er ég með Maybelline Color sensational lip liner í velvet beige sem grunn, Angel frá Mac og Maybelline color elixir glossinn í 720, sem ég fékk einnig til að prófa.
Varablýanturinn gefur varalitnum dekkra yfirbragð og glossinn toppar svo lúkkið. Þessi gloss er líka fallegur einn og sér, gefur vörunum góða fyllingu og klístrast ekki. Ég mæli með því að þið tékkið á Color elixir glossunum, þeir eru til í nokkrum fallegum litum. Þeir eru mjög pigmentaðir, nærandi og í rauninni varalitir í fljótandi formi.
xx
Varirnar eru æði! tóna svakalega vel við augun þín 🙂
LikeLike
Takk fyrir! 🙂 xx
LikeLike