Í dag er það annað lúkk með pallettunni góðu! Þið neyðist bara til þess að kaupa hana, því ég á aldrei eftir að sýna ykkur neitt annað.
Ég byrjaði á því að grunna augnlokið eins og sönnum málara sæmir. Ég nota yfirleitt til þess paint pot í litnum painterly frá mac. Næst setti ég litinn ‘shiny happy’ (kaldur, gull) yfir allt augnlokið. Er búin að vera með Shiny Happy People með R.E.M á heilanum í 10 daga núna. Takk Too Faced.
Næst skyggði ég glóbuslínuna og augnbeinið með ‘fawned of you’ (ljósbrúnn) og notaði til þess stóran blöndunarbursta. Í ytra ‘vaffið’ setti ég litinn ‘knockout’, sem er rauðtóna dökkbrúnn. Yfir fawned of you setti ég síðan skærbleika litinn ‘totally fetch’, með sama stóra blöndunarburstanum, og dró hann svolítið hátt upp.
Undir augað fór brúnn eyeliner og einnig í neðri vatnslínu. Ég mýkti hann með blöndunarbursta og setti svo litinn ‘live it up’ (fjólublár) yfir. Næst fór smá af þessum bleika yfir og aðeins niður fyrir fjólubláa og að lokum dúmpaði ég smá af ‘paper roses’ (fölbleikum) í innri augnkrók. Augnhárin sem ég er með heita Wispy (WSP) og eru Red cherry. Þetta eru augnhár sem ég nota mjög mikið. Þau eru smá kreisí, en skyggja samt ekki á augnförðunina.
Ég gat ekki ákveðið hvora væmnu myndina ég ætti að nota svoleiðis að þið fáið báðar. Maður þarf að leggja sig allan fram þegar maður lúkkar pínu eins og týndi meðlimurinn í Addams fjölskyldunni.
Á húðinni er ég með Kat Von D lock it foundation, sem ég segi ykkur frá á næstu dögum. Í kinnunum er ég auðvitað með kinnalit og highlighter úr pallettunni, eða ‘papa don’t peach’ og ‘inner light’.
Ég lofa að tala næst um eitthvað annað heldur en þessa blessuðu pallettu.
xx
Leave a Reply